Friday Feb 21, 2025

#1 Gunnar Ásgeir Ásgeirsson - Gervigreind, íslenskt mál og þýðingar

Í þessum fyrsta þætti er rætt við Gunnar Ásgeir Ásgeirsson, kerfisstjóra við Háskólann á Akureyri, hann deilir reynslu sinni úr kvikmyndabransanum – sögum af sýningarstjórastarfinu sem hvarf með stafrænu byltingunni til textavinnslu og verndun íslenskunar.
Við spyrjum: Hvernig temjum við tæknina á ábyrgan hátt, án þess að missa tökin?

Gunnar er líka gestgjafi hlaðvarpsins Litli mallakúturinn – hlustaðu á það hér: Spotify tengill.

Bónus fyrir tækniáhugafólk: Kíktu á WhisperSST.is – 100% staðbundið, open-source máltækniviðmót í þróun sem þýðir íslenskt tal í texta beint á þinni vél, án skýjaþjónustu eða nettengingar (eftir fyrsta niðurhal). Þetta verkfæri keyrir á þínum vélbúnaði og tryggir fullkomið næði. Skoðaðu kóðann og prófaðu sjálf(ur) á GitHub.

Copyright 2025 All rights reserved.

Version: 20241125